Höfum hækkað afsláttinn í 15 kr. á Orkunni og Shell í dag þegar greitt er með lyklum/kortum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs.
14 kr. afsláttur af lítranum í dag þegar greitt er með lyklum/kortum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs.
Föstudaginn 29. maí, ætla Iðkendur og þjálfarar hjá Sparta Heilsurækt og Training for Warriors Reykjavík að hlaupa boðhlaup frá Kópavogi til Blönduóss og safna áheitum fyrir Umhyggju, styrktarfélag langveikra barna. Hlaupararnir verða 25 talsins en þeir munu skiptast á að hlaupa 244 kílómetra. Rúta mun fylgja hlaupurunum alla leiðina og styrkir Skeljungur hópinn með eldsneytisinneign.
Jón Páll Leifsson, markaðsstjóri Skeljungs afhenti Jóhanni Emil Elíassyni, öðrum skipuleggjanda hlaupsins, styrkinn góða á hlaupunum fyrr í vikunni eins og sjá má á myndinni.
Í byrjun maí var kláraður samningur Skeljungs við íþróttafélagið Mjölni um árangurstengdan styrk í gegnum notkun á sérstökum Mjölnis Orkulyklum.
Í Mjölni er mjög kraftmikil starfssemi þar sem um 1.400 manns æfa, menn, konur og krakkar. Þess má geta að fáir hópar hafa farið jafnvel af stað og Mjölnir í því að koma lyklum til sinna liðsmanna og vonumst við til þess að það haldi áfram.
Á myndunum eru þeir Jón Viðar framkvæmdastjóri Mjölnis og Jón Páll markaðsstjóri Skeljungs (þessi í borgaralegu fötunum). Þó myndirnar beri það ekki allar með sér, skal það tekið skýrt fram að undirskriftin var gerð af fúsum og frjálsum vilja við óþvingaðar aðstæður.
Lyklar/kort Orkunnar og staðgreiðslukort Skeljungs veita 14 kr. afslátt af lítranum á bensínstöðvum Orkunnar og Shell.