14.08.2015

Skeljungur styrkir Þorstein með stolti

Þorsteinn Halldórsson mun keppa fyrir hönd Íslands á heimsmeistaramóti fatlaðra í bogfimi sem fer fram í Þýskalandi í lok ágúst. Hann er fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í þessari keppni og er Skeljungur stoltur styrktaraðili Þorsteins í atlögu hans að heimsmeistaratitlinum.

Við heimsóttum Þorstein í Bogfimisetrið til að afhenda honum styrkinn góða. Á myndunum sést Ingvi Örn, markaðsfulltrúi Skeljungs, afhenda Þorsteini styrkinn sem tók við honum auðvitað með viðeigandi hætti.

27.07.2015

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig í Sumarleik Orkunnar!

Sumarleik Orkunnar lýkur 31. ágúst  og því fer hver að verða síðastur til að skrá sínar 2 vikur og fá 13 kr. afslátt á Orkunni og Shell. Ef þú ert búin(n) að nýta þínar 2 vikur þá er um að gera að skoða hversu mörg svæði þú ert búin(n) að heimsækja og hvort þú getir ekki bætt við svæðum og átt þar með möguleika á stærri vinningum í lok sumars. 23 inneignarkort verða dregin út í lok sumars, frá 20.000 - 100.000 kr. Skráðu þig til leiks á  Orkan.is/sumarleikur 

30.07.2015

14 kr. afsláttur á Orkunni og Shell í dag

Í dag er 14 kr. afsláttur á Orkunni og Shell í dag 31. júlí þegar greitt er með kortum/lyklum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs. Toppum allan auglýstan tímabundinn almennan afslátt af eldsneyti.

Pylsa, Coke og Prince Polo á 399 kr.

29.07.2015

Opnunartímar verslana og þjónusta á plani yfir verslunarmannahelgina

Óbreyttur afgreiðslutími er í verslunum 10-11 við bensínstöðvar Orkunnar og Shell yfir verslunarmannahelgina.

Verslanir Skeljungs við Gylfaflöt og í Hraunbæ verða lokaðar á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 3. ágúst.

Þjónusta starfsmanna á plani helst einnig óbreytt á  bensínstöðvum Shell nema á mánudaginn  3. ágúst. Þá verður þjónusta á plani í boði frá 09:00 - 19:30.

Á Shell Vesturlandsvegi verður þjónusta á plani frá 7:30-19:30

 

24.07.2015

14 kr. afsláttur af lítranum í dag

Í dag er 14 kr. afsláttur á Orkunni og Shell í dag 24. júlí þegar greitt er með kortum/lyklum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs. Toppum allan auglýstan tímabundinn almennan afslátt af eldsneyti.

Pylsa, Coke og Prince Polo á 399 kr.