Í samstarfi við Römpum upp Ísland og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra hefur Orkustöðin í Suðurfelli verið römpuð upp. Orkustöðin í Suðurfelli er fyrsta aðgengilega bensínstöð landsins og voru ramparnir formlega teknir í notkun í gær þegar Þuríður Harpa, formaður Öryrkjabandalagsins, og Margrét Lilja, formaður Sjálfsbjargar, mættu og fylltu á tankinn. Með því að hækka stéttina í kringum þrjár bensíndælur og færa greiðsluvélarnar neðar hafa Römpum upp Ísland bætt aðgengi fyrir hreyfihamlaða á Orkustöðinni. Bílastæðin hafa einnig verið breikkuð og allt aðgengi að og inn í verslunum verið rampað upp. Auk orkugjafa þá eru Lyfjaval og Sbarro með verslun og þjónustu í Suðurfelli Breiðholti og settir hafa verið sjálfvirkir hurðaopnar, aðgengilegt salerni og borð í réttri hæð.
“Við erum gríðarlega stolt af þessu samstarfi með Römpum upp og Sjálfsbjörg. Þessi vegferð mun einfalda líf hreyfihamlaðra og það er einstaklega jákvætt að taka þátt í henni og geta stutt við vegferðina með þessum hætti. Með þessari breytingu sem við erum að hefja viljum við tryggja fullt aðgengi viðskiptavina okkar þar sem að auki verður fullt aðgengi fyrir alla innandyra. Vinir okkar í Suðurfelli sem eru Lyfjaval og Sbarro bjóða alla velkomna. Þarna er stórt þjónustusvæði og okkar markmið er að einfalda líf viðskiptavina“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.
„Það gleður okkur mjög að sjá að vitundarvakninginn um aðgengi hreyfihamlaðra er farin að teygja sig til annarra þátta samfélagsins. Þegar við hleyptum verkefninu af stað einbeittum við okkur að verslunar og veitingarýmum en þökk sé þrautsegju og frumkvæði annarra erum við farin að sjá rampa á öðruvísi stöðum, eins og til dæmis á þessari bensínstöð“ segir Þorleifur Gunnlaugsson, framkvæmdastjóra og stjórnarformanni Römpum upp Ísland.
“Það er svo frábært að hafa fyrirtæki eins og Orkuna sem tekur virkan þátt í að gera heiminn betri fyrir okkur öll. Það er magnað að fá að taka þátt í svona flottu verkefni. Við viljum öll geta verið virkir þátttakendur í daglegu lífi þar á meðal að geta sinnt venjulegum hlutum eins og að fylla á tankinn. Þessi stöð er mikilvægur þáttur í að veita hreyfihömluðum einstaklingum sama rétt til sjálfstæðs lífs og öðrum og ég hlakka til dagsins þegar allar bensínstöðvar landsins verða aðgengilegar öllum.“ segir Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir, formaður Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra.
Til stendur að halda samstarfinu áfram og hefur Orkan áhuga á að verslanir við Orkustöðvar á Bústaðavegi, Reykjavíkurvegi, Miklabraut, Hraunbæ og Suðurströnd verði einnig rampaðar upp. Þess má einnig geta að verslanir við Orkuna Stokkseyri og Kleppsvegi hafa nú þegar verið rampaðar upp.
Á hópmynd eru forsvarsaðilar frá Orkunni, Römpum upp Ísland, Sjálfsbjörg, Öryrkjabandalaginu, Hverfisstjórn Breiðholts, Innviðaráðuneytinu og menta og barnamálaráðuneytinu.
Frá vinstri til hægri, röð fyrir aftan
Hringur Hilmarsson – Römpum upp Ísland, Gunnar Þór Gunnarsson – Verkefnastjóri Orkuvaktinni, Brynja Guðjónsdóttir – markaðsstjóri Orkunnar, Ósk Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Sjálfsbjörg, Auður Daníelsdóttir – forstjóri Orkunnar, Jóhannes Guðlaugsson – forsvarsmaður fyrir hverfisstjóra Breiðholts, Vífill Ingimarsson – framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Orkunnar, Arnar Þór Sævarsson – Mennta og barnamála ráðuneytið, Margrét Rut Eddudóttir - baráttukonu fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra, Vilmundur Gíslason – framkvæmdastjóri SLF, Þorleifur Gunnlaugsson – framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Römpum upp Ísland, Tayo Örn Norðfjörð – Römpum upp Ísland, Ásmundur Einar Daðason – mennta og barnamálaráðherra í forsvari fyrir Sigurð Inga Innviðaráðherra, Guðbjörg Runólfsdóttir – verkefnastjóri markaðsmála og viðburða hjá Sjálfsbjörg, Aðalsteinn Þorsteinsson - innviðaráðuneytið, Guðni Geir Einarsson – innviðaráðuneytið, Ragnar Róbertsson - Jöfnunarsjóður, Þór Sigurþórsson - Römpum upp Ísland.
Röð fyrir framan
Þuríður Harpa Sigurðardóttir – formaður Öryrkjabandalagsins, Haraldur Þorleifsson og sonur þeirra Margrétar– maður árins og baráttumaður fyrir bættu aðgengi hreyfihamlaðra, Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir – stjórnarformaður Sjálfsbjörg, landssamband hreyfihamlaðra
Prepp Barinn hefur nú opnað hjá okkur á Dalvegi og Joe and the Juice á Birkimel.
Prepp Barinn býður viðskiptavinum 20% afslátt af öllu á matseðli til og með 19.janúar á Dalvegi.
Prepp Barinn er með gott úrval af hollustu og hefur það markmið að aðstoða þig að borða hollt, hvernig sem þú túlkar hollustu. Macros, lágkolvetna, vegan eða kjöt mataræði.
Joe and the Juice býður viðskiptavinum 50% afslátt af djúsum og sjeikum til og með 31.janúar á Birkimel.
Joe and the Juice er með gott úrval af hollum samlokum, djúsum og sjeikum.
Þú finnur Prepp Barinn á Orkunni Dalvegi og Vesturlandsvegi. Joe and the Juice má finna á Orkunni Birkimel, Miklubraut og Reykjavíkurvegi.
Kíktu á afsláttarkjör með Orkulyklinum hjá öllum vinum okkar hér
Takk kæru Orkuboltar og Brandr vörumerkjastofa!
Orkan er tilnefnd sem Besta íslenska vörumerkið á einstaklingsmarkaði árið 2022. Við erum ótrúlega þakklát fyrir þessa viðurkenningu og erum í hópi flottra vörumerkja sem hafa fengið tilnefningu.
Þetta verður í þriðja sinn sem viðurkenningin verður veitt og hljóta þau vörumerki útnefningu sem þykja skara fram úr þegar horft er til stefnumiðaðrar vörumerkjastýringar. Ferlið byggir á akademískri og faglegri nálgun vörumerkjastjórnunar með staðfærslu sem þungamiðju.
Við fylgjumst spennt með en viðurkenningin verður afhent 8.febrúar 2023.
Viðskiptavinir Orkunnar söfnuðu 1,5 milljónum króna til Bleiku slaufunnar, átaks Krabbameinsfélagins. Söfnunin fór þannig fram að á Bleika deginum, 14. október, runnu 5 krónur af hverjum seldum lítra til átaksins. Til viðbótar safna Orkulyklar viðskiptavina sem eru skráðir í hóp Bleiku slaufunnar 1 krónu á hvern seldan lítra allt árið en 2 krónur í október.
Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Í ár var slagorð átaksins “Sýnum lit” með áherslu á að það er margt sem hver og einn getur gert til að draga úr líkum á krabbameinum.
„Krabbameinsfélagið er mikilvæg samfélagsstoð. Félagið er ekki eingöngu þeim sem veikjast ómetanlegur stuðningur, heldur einnig aðstandendum þeirra. Orkan er stoltur styrktaraðili Bleiku slaufunnar í 16 ár. Í október lögðum við auka lóð á vogarskálarnar með því að styrkja málefnið sérstaklega á Bleika deginum. Við bjóðum einnig viðskiptavinum að styrkja málefnið aðra mánuði ársins með Orkulyklinum. Eins og Bleika slaufan, þá elskum við hjá Orkunni að vera bleik. Bleik í október – bleik allan ársins hring.” segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar.
„Allt starf Krabbameinsfélagsins er rekið fyrir stuðning almennings og fyrirtækja í landinu. Við erum því óendanlega þakklát öllum þeim sem leggja sitt af mörkum til félagsins. Þannig getum við haldið áfram af krafti að vinna að markmiðum félagsins sem eru að fækka þeim sem veikjast af krabbameinum, lækka dánartíðni þeirra sem greinast með krabbamein og bæta lífsgæði þeirra sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra. Það eru traustir stuðningsaðilar á borð við Orkuna sem gera okkur þetta kleift – takk fyrir frábært samstarf í gegnum tíðina og vonandi um ókomin ár!“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.
Orkan gerir viðskiptavinum kleift að styðja Krabbameinsfélagið allan ársins hring með bleika Orkulyklinum og er hægt að sækja um hann hér.
Á myndinni eru frá Krabbameinsfélaginu þau Árni Reynir Alfredsson, forstöðumaður markaðsmála og fjáröflunar og Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri, sem tóku við styrknum frá þeim Auði Daníelsdóttur, forstjóra Orkunnar og Brynju Guðjónsdóttur, markaðsstjóra Orkunnar.
Bleiki dagurinn er í dag og Orkan hefur verið stoltur styrktaraðili Bleiku slaufunnar í 16 ár!
Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn
krabbameini hjá konum. Í dag leggum við átakinu lið með því að gefa 5 krónur af hverjum seldum
lítra til Bleiku slaufunnar. Kíktu í mælaborðið og fyllum á tankinn saman fyrir Bleiku slaufuna.
Nýtum Orkuna í góðu málin!