21.03.2014

Finndu þína stöð og þú gætir unnið 15 000 kr. inneignarkort.

Farðu á Facebook síðu Orkunnar, finndu þína bensínstöð á höfuðborgarsvæðinu (Orkuna eða Shell) og þú gætir unnið 15.000 kr. inneignarkort. Skrifaðu hvað hún heitir í comment og á hvaða sekúndu hún birtist og þitt nafn fer í pottinn.

14.03.2014

Eldsneytið 20 kr. ódýrari en fyrir ári síðan

Þeir sem fylgjast með eldsneytisverði vita að verðið á Íslandi tekur mið af heimsmarkaðsverði á olíu og gengi ISK. á hverjum tíma. Ef við lítum um öxl og skoðum hvert verðið var fyrir ári síðan skv. heimasíðu Skeljungs þá sést að verðið á bensíni var fyrir ári 259,9 kr/litra. Í dag er verðið 20 kr lægra á hvern lítra eða 239,9 kr. Verðið á diesel olíu fyrir ári var  255,6 kr/litra og í dag er það 14,2 kr lægra per litra. Skýringin er eins og svo oft áður lægra heimsmarkaðsverð á olíu og ekki síður styrking krónunnar gagnvart Bandaríkjadollar. Þess ber líka að geta að opinber gjöld hafa hækkað á bæði bensín og diesel olíu. Vissi einhver af þessu?

26.02.2014

Skeljungur framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2013

Skeljungur er á lista Creditinfo yfir „Framúrskarandi fyrirtæki á Íslandi 2013“ en aðeins rúmt 1% af íslenskum fyritækjum stenst þau skilyrði sem Creditinfo setur. 

Til að standast styrkleikamat Creditinfo þurfa fyrirtæki að uppfylla eftirfarandi kröfur:

  1. Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2010 til 2012.
  2. Að vera með jákvætt áhættumat Creditinfo: CIP flokkar 1-3(minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum) í janúar 2014
  3. Að sýna rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð, 2010 til 2012
  4. Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð, 2010 til 2012
  5. Að eignir séu 80 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2010 til 2012
  6. Að eiginfjárhlutfall sé 20% eða meira, rekstrarárin 2010 til 2012
  7. Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagskrá
  8. Að vera virkt fyrirtæki samkvæmt skilgreiningu Creditinfo
Af rúmlega 33.000 fyrirtækjum sem skráð eru í hlutafélagaskrá sýna 462 þann styrk í mælingum Creditinfo að verðskulda viðurkenninguna Framúrskarandi fyriræki.  Viðurkenning af þessu tagi þekkist víða erlendis en á stærri mörkuðum er algengara að skilyrði vottunar séu ekki eins ströng og ákveðið var að setja hér á landi.  Að mati Creditinfo er mikilvægara á litlum markaði að draga fram styrkleika fyrirtækja sem birtast í stöðugleika í rekstri, fremur en niðurstöðum einstakra rekstrarára.  Slíkar kröfur eru líklegri til að undanskilja sveiflukenndan árangur stærri eignarhalds- og móðurfélaga en undirstrika frekar styrkleika fyrirtækja í virkri starfsemi sem standast ýmsar efnahagssveiflur.
 
Mörg fyrirtæki hafa nýtt sér og notið góðs af því að vera í úrvalshópi Framúrskarandi fyrirækja.

Það eykur traust og ber merki um stöugleika.


25.02.2014

Hækkum afsláttinn í 13 kr. á Orkunni og Shell

Vorum að hækka afsláttinn í 13 kr. í dag, 25. febrúar, á Orkunni og Shell þegar greitt er með kortum og lyklum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs.

25.02.2014

11 kr. afsláttur á Orkunni og Shell í dag 25 feb.

Í dag 25. febrúar er 11 kr. afslattur á Orkunni og Shell þegar greitt er með kortum og lyklum Orkunnar eða staðgreiðslukorti Skeljungs.